Kolefnisbinding en ekki kolefnisjöfnun

Í ljósi fréttar sem birtist á Vísi undir fyrirsögninni „Tekist á um gróðursetningu trjáaviljum við koma eftirfarandi á framfæri:

Skógarloft býður upp á kolefnisbindingu með skógrækt en ekki kolefnisjöfnun. Kolefnisbinding skógarlofts með skógrækt er unnin samkvæmt alþjóðlegum ISO-14064 staðli og í samræmi við Evróputilskipanir.

Landval Skógarlofts mótast af ýmsum þáttum – vilja landeiganda til samstarfs, hentugleika lands til skógræktar, aðgengi, beitarmálum, landslagsgerðum o.s.frv. Allar gróðursetningar eru byggðar á skógræktaráætlun og háðar framkvæmdaleyfi frá skipulagsyfirvöldum sveitarfélaga, þar sem iðulega er kallað eftir umsögnum stofnana sem með náttúru- og minjavernd fara.

Skógarloft hefur frá stofnun reynt að vinna af heilindum og á grundvelli besta vinnulags hvers tíma.

Allar tekjur Skógarlofts fara til skógræktar.

Previous
Previous

Skógarloft fær ISO vottun

Next
Next

Ársfundur Skógarlofts